Fara í efni

Menningarráð Eyþing auglýsir til umsóknar verkefnastyrki til menningarstarfs á Norðausturlandi

Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli samnings mennta- og menningarmálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis við Eyþing. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Norðausturlandi.

Áherslur ársins 2014

  • Verkefni sem hvetja til samstarfs einstaklinga, hópa, byggðarlaga eða listgreina. Sérstaklega  er horft til verkefna sem  eru samstarf þriggja eða fleiri aðila og tengja íbúa á Norðurlandi eystra
  • Verkefni sem  stuðla að samvinnu atvinnumanna í  listum, listnema, og leikmanna
  • Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar,  lista og menningartengdrar ferðaþjónustu/ferðaþjónustutengdrar menningar
  • Verkefni sem fela í sér listsköpun fólks á aldrinum 18-25 ára
  • Verkefni eða aðilar sem ekki hafa fengið stuðning menningarráðs áður
  • Verkefni sem fela í sér samstarf við önnur lönd á sviðið menningar og lista

Umsóknarfrestur er til og með 12. desember 2013.

Úthlutun fer fram í febrúar meðfyrirvara um samþykki alþingis.

Styrkþegar verða að hafa skilað inn greinargerð vegna fyrri verkefna til þess að geta sótt um vegna ársins 2014. Ein úthlutun verður á árinu 2014.

Verkefnum sem hljóta styrki þarf að vera lokið fyrir árslok 2014.

Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Eyþings á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings www.eything.is eða hjá menningarfulltrúa Eyþings, Strandgötu 29, 3. hæð. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur menningarráðs á heimasíðu Eyþings www.eything.is

Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi í síma 464 9935 og 862 2277 eða á netfangið menning@eything.is


Menningarráð Eyþings auglýsir stofn- og rekstrarstyrki til menningarmála

(styrkir sem Alþingi veitti áður)

Menningarráð Eyþings auglýsir nú í þriðja sinn eftir umsóknum um stofn- og rekstrarstyrki á grundvelli viðauka menningarsamnings mennta- og menningarmálaráðuneytis við Eyþing.

Tilgangur styrkjanna er að efla starfsemi á sviði lista, safna og menningararfs. Styrkirnir miðast við starfsemi árið 2014.

Við úthlutun ársins 2014 hefur menningarráð ákveðið að líta frekar til þeirra umsækjenda sem uppfylla  eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

  • Stuðla að því að efla menningarstarfsemi á sviði lista, safna- og menningararfs
  • Stuðla að nýsköpun í menningarstarfsemi
  • Styðja við menningarstarfsemi sem fjölgar atvinnutækifærum á svæðinu

Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Eyþings á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings www.eything.is eða hjá menningarfulltrúa Eyþings, Strandgötu 29, 3. hæð. Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur menningarráðs vegna stofn- og rekstrarstyrkja á heimasíðu Eyþings www.eything.is

Umsóknarfrestur er til og með 12. desember 2013. Úthlutun verður í febrúar með fyrirvara um samþykki alþingis.

Nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi í síma 464 9935 og 862 2277 eða á netfangið menning@eything.is

 

Menningarráð Eyþings auglýsir viðveru menningarfulltrúa í sveitarfélögum í Eyþingi vegna úthlutunar á menningarstyrkjum og stofn- og rekstrarstyrkjum 2014. Viðtalstímar menningarfulltrúa verða sem hér segir:

Kópasker             2.  desember  10.30-12                Skrifstofu Norðurþings

Raufarhöfn         2. desember kl. 13-14.30            Skrifstofu Norðurþings

Þórshöfn             3. desember  kl. 9-11                   Skrifstofu Langanesbyggðar Þórshöfn

Húsavík                4. desember kl. 9-12                   Menningarmiðstöð Þingeyinga

Akureyri               5. og 6. desember  kl. 13-16       Skrifstofu menningarfulltrúa, Strandgötu 29, 3. hæð

Viðtalstímar á öðrum tímum eftir samkomulagi.