Menningarráð Eyþings - aukaúthlutun verkefnastyrkja
Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli samnings menntamála- og iðnaðarráðuneytis við Eyþing frá 27. apríl 2007. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Norðausturlandi.
Menningarráðið leggur jafnan áherslu á að þau verkefni sem hljóta styrki efli á einhvern hátt samstarf og/eða samvinnu í menningarmálum á Norðausturlandi eða dragi fram menningarleg sérkenni svæðisins. Auk þessa hefur ráðið ákveðið að árið 2009 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:
* Verkefni sem hvetja til samstarfs einstaklinga, hópa, byggðarlaga eða listgreina. Sérstaklega er horft til verkefna sem eru samstarf þriggja eða fleiri aðila og tengja saman Norðausturland
* Verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum og leikmanna
* Verkefni sem hvetja til samvinnu ólíkra þjóðarbrota í samstarfi við Íslendinga. Verkefnin geta tengst tónlist, danslist, myndlist, bókmenntum og fl.
* Verkefni sem efla þekkingu og fræðslu á sviði menningar og lista
* Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista
Umsóknarfrestur er til og með 18. september. Úthlutun fer fram í október.
Hámarksstyrkur í aukaúthlutun er 400.000.- Verkefni sem fá úthlutað í aukaúthlutun þurfa að fara fram á tímabilinu október 2009 - janúar 2010.
Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Eyþings á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings http://www.eything.is/ eða hjá menningarfulltrúa Eyþings, Strandgötu 29, 3. hæð.
Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur menningarráðs á heimasíðu Eyþings http://www.eything.is/
Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi í síma 464 9935 og 862 2277 eða á netfangið menning@eything.is
Menningarráð Eyþings auglýsir viðveru menningarfulltrúa í sveitarfélögum í Eyþingi vegna aukaúthlutunar á menningarstyrkjum 2009. Viðtalstímar menningarfulltrúa verða sem hér segir:
Húsavík 1. september kl. 11-12 í Menningarmiðstöð Þingeyinga
Kópasker 3. september kl. 11-12 á skrifstofu Norðurþings
Raufarhöfn 3. september kl. 13-14 á skrifstofu Norðurþings
Viðtalstímar á öðrum tímum eftir samkomulagi.