Fara í efni

Menningarráð Eyþings - umsókn um verkefnastyrki

Menningarráð Eyþings auglýsir til umsóknar verkefnastyrki til menningarstarfs á Norðausturlandi Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli  samnings  mennta- og menningarmálaráðuneytis og  iðnaðarráðuneytis við Eyþing frá 27. apríl 2007. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Norðausturlandi.

Menningarráð Eyþings auglýsir til umsóknar verkefnastyrki til menningarstarfs á Norðausturlandi

Menningarráð Eyþings auglýsir eftir umsóknum um styrki á grundvelli  samnings  mennta- og menningarmálaráðuneytis og  iðnaðarráðuneytis við Eyþing frá 27. apríl 2007. Tilgangur styrkjanna er að efla menningarstarfsemi og menningartengda ferðaþjónustu á Norðausturlandi.

Menningarráðið leggur jafnan áherslu á að þau verkefni sem hljóta styrki efli á einhvern hátt samstarf og/eða samvinnu í menningarmálum á Norðausturlandi eða dragi fram menningarleg sérkenni svæðisins.  Auk þessa hefur ráðið ákveðið að árið 2010 hafi þau verkefni forgang sem uppfylla eitt eða fleiri eftirtalinna atriða:

  • Verkefni sem hvetja til samstarfs einstaklinga, hópa, byggðalaga eða listgreina. Sérstaklega er horft til verkefna sem eru samstarf þriggja eða fleiri aðila og tengja saman Norðausturland.
  • Verkefni sem stuðla að samvinnu atvinnumanna í listum, listnema og leikmanna.
  • Verkefni sem hvetja til samvinnu ólíkra þjóðarbrota í samstarfi við Íslendinga. Verkefnin geta tengst tónlist, danslist, myndlist, bókmenntum og fl.
  • Verkefni sem efla þekkingu og fræðslu á sviði menningar og lista
  • Verkefni sem efla atvinnustarfsemi á sviði menningar og lista

 

Umsóknarfrestur er til og með 12. febrúar.  Úthlutun fer fram í mars. Styrkþegar verða að hafa skilað inn greinargerð vegna fyrri verkefna til þess að geta  sótt um vegna ársins 2010. Ein úthlutun verður á árinu 2010.

Verkefnum sem hljóta styrki  þarf að vera lokið fyrir árslok 2010.

Umsóknum skal skilað til Menningarráðs Eyþings á þar til gerðum eyðublöðum sem nálgast má á heimasíðu Eyþings http://www.eything.is/ eða hjá menningarfulltrúa Eyþings, Strandgötu  29, 3. hæð.  Umsækjendur eru hvattir til að kynna sér úthlutunarreglur menningarráðs á heimasíðu Eyþings http://www.eything.is/

Allar nánari upplýsingar veitir Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir menningarfulltrúi í síma 464 9935 og 862 2277 eða á netfangið menning@eything.is

Fréttabréf Eyþings