Fara í efni

Milljón heimsóknir

Nú hefur vefsíða Norðurþings, www.nordurthing.is, fengið milljón heimsóknir frá því að hún var fyrst sett í loftið í júní 2006.  Vefsíðan er fyrst og fremst hugsuð sem frétta- og upplýsingaveita fyrir íbúa Norðurþings og er stöðugt leitast við að auka þá þjónustu.  Ánægjulegt er að sjá að aukning á fjölda gesta hefur verið stöðug frá upphafi.

Sem dæmi má nefna að þegar vefurinn var þriggja mánaða gamall var fjöldi gesta sem heimsóttu vefinn tæplega 1200 að meðaltali á mánuði.  Það sem af er þessu ári er meðalfjöldi gesta sem heimsækja vefinn í hverjum mánuði orðinn tæplega 3000.