Námskeið í að takast á við breytingar.
Vegna þeirra breytinga sem standa yfir á stjórn- og starfaskipulagi Húsavíkurbæjar var ákveðið að bjóða starfsfólki upp á námskeið í að takast á við breytingar, og var það haldið síðastliðinn mánudag í Hvalasafninu á Húsavík. Námskeiðinu er ætlað að auðvelda starfsmönnum að nálgast breytingarnar með jákvæðum huga og stuðla að aukinni samvinnu meðal starfsmanna og stjórnenda.

Námskeiðið var í formi fyrirlestrar þar sem Kristján Már Magnússon, sálfræðingur fjallaði um breytingaferlið og áhrif þess á starfsfólk almennt – álag og ávinning, uppörvun og ögrun. Einnig voru umræður um áhrif breytinga á starfsmenn og aðferðir við að takast á við þær. Fjallað var um hvernig mismunandi viðhorf til breytinga leiða til þess að fólk bregst mismunandi við þeim.
Þátttakendur á námskeiðinu voru á milli 40 og 50 og mátti sjá starfsmenn frá langflestum stofnunum bæjarins.