Netaveiði göngusilungs í sjó 2019
21.06.2019
Tilkynningar
Norðurþing auglýsir laus netaveiðileyfi göngusilungs í sjó í landi Húsavíkur.
Veiðisvæðin eru 10 og eru þau fyrirfram skilgreind. Hvert veiðileyfi veitir rétt til lagningu á einu neti á hverju svæði. Veiðin er háð lögum og reglugerðum um þessar veiðar.
Umsóknareyðublöð og frekari upplýsingar liggja á skrifstofu stjórnsýslunnar á Húsavík.
Verði umsóknir fleiri en leyfin fyrir hvert veiðisvæði verður dregið úr umsóknum. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 fimmtudaginn 27 júní nk. Úthlutun leyfa fer fram kl 13:00 föstudaginn 28 júní nk.
Verkefnastjóri framkvæmdasviðs