Netaveiði göngusilungs í sjó 2021
16.04.2021
Tilkynningar
Norðurþing auglýsir laus netaveiðileyfi göngusilungs í sjó í landi Húsavíkur.
Veiðisvæðin eru 10 og eru þau fyrirfram skilgreind. Hvert veiðileyfi veitir rétt til lagningu á einu neti á hverju svæði. Veiðin er háð þeim lögum og reglugerðum sem gilda um veiðar á göngusilungi.
Sækja skal um veiðileyfi rafrænt á vef Norðurþings.
Leyfisgjald fyrir hvert veiðileyfi er kr. 12.000,- og greiðist við afhendingu leyfis og fylgigagna. Frekari upplýsingar fást í síma 464-6100.
Verði umsóknir fleiri en leyfi fyrir hvert veiðisvæði verður dregið úr umsóknum. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 föstudaginn 30. apríl nk. Úthlutun leyfa fer fram kl 14:00 næsta virka dag.
Ketill Gauti Árnason,
Verkefnastjóri framkvæmdasviðs