Netaveiðileyfi göngusilungs í sjó fyrir landi Húsavíkur 2023
08.05.2023
Tilkynningar
Norðurþing auglýsir laus netaveiðileyfi göngusilungs í sjó í landi Húsavíkur.
Veiðisvæðin eru 10 og eru þau fyrirfram skilgreind.
Hvert veiðileyfi veitir rétt til lagningu á einu neti á hverju svæði.
Veiðin er háð þeim lögum og reglugerðum sem gilda um veiðar á göngusilungi.
Sækja skal um veiðileyfi rafrænt á vef Norðurþings.
Reglugerð um búnað og frágang neta vegna veiða göngusilungs í sjó
Leyfisgjald fyrir hvert veiðileyfi er kr. 12.000,- og greiðist við afhendingu leyfis og fylgigagna. Frekari upplýsingar fást í síma 464-6100.
Verði umsóknir fleiri en leyfi fyrir hvert veiðisvæði verður dregið úr umsóknum. Umsóknarfrestur er til kl. 16:00 fimmtudaginn 18. maí nk. Úthlutun leyfa fer fram næsta virka dag kl. 10:00.
Ketill Gauti Árnason,
Verkefnastjóri framkvæmdasviðs