Fara í efni

Norðurþing býður í sund á gamlársdag

Sveitarfélagið Norðurþing býður íbúum sveitarfélagsins og gestum þeirra frítt í sund á Húsavík á gamlársdag.  Opið er frá kl. 10:00-15:00 á gamlársdag.  Íbúar eru hvattir til samveru og hreyfingar.

Minnt er á gamlárshlaup Skokka sem hefst klukkan 13:00 við Sundlaug Húsavíkur.

Ókeypis þátttaka og boðið upp á göngu eða hlaup við allra hæfi, 3, 5 og 10 km.