Fara í efni

Norðurþing flytur skiptiborðið til Raufarhafnar

Frá og með deginum í dag, 21. október, verður svarað á Raufarhöfn þegar hringt er í aðalnúmer Norðurþings.

Frá og með deginum í dag, 21. október, verður svarað á Raufarhöfn þegar hringt er í aðalnúmer Norðurþings.

Þjónustan við skiptiborð Norðurþings hefur nú verið flutt í nýju þjónustumiðstöðina á Raufarhöfn sem heimamenn hafa gefið nafnið "Ráðhús".  Þjónustumiðstöðin  hýsir nú skrifstofur Norðurþings á Raufarhöfn, Sparisjóð Þórshafnar og nárgrennis ásamt Íslandspóst.

Vonir standa til að fjölga megi starfsemi í þjónustumiðstöðinni í framtíðinni.