Fara í efni

Norðurþing flytur skrifstofuna sína á Húsavík

Norðurþing flytur skrifstofuna sína á Húsavík og mun flytja frá núverandi staðsetningu yfir í húsnæði að Garðarsbraut 5 (kaupfélagshúsið), á aðra og þriðju hæð. Móttaka sveitarfélagsins verður staðsett á annarri hæð.

Flutningar munu eiga sér stað á fimmtudaginn 7. nóvember og föstudaginn 8. nóvember og verður skrifstofan því lokuð þá daga. Einnig verður lokað fyrir símann en hægt verður að senda tölvupóst á nordurthing@nordurthing.is

 

Hlökkum til að taka á móti ykkur á nýjum stað.