Norðurþing gefur starfsmönnum sínum frí í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna
15.06.2015
Tilkynningar
Í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna samþykkti bæjarráð Norðurþings að gefa starfmönnum sveitarfélagsins frí frá hádegi föstudaginn 19. júní.
Allar stofnanir sveitarfélagsins sem veita almenningi þjónustu verða því lokaðar frá hádegi 19. júní.
Bókasafnið á Húsavík verður lokað allan daginn.
Sundlaug Húsavíkur verður lokuð allan daginn, fyrri part dags sækja starfsmenn lögbundið námskeið í skyndihjálp.