Fara í efni

Norðurþing og Vís gera samning um tryggingar sveitarfélagsins

Á dögunum skrifuðu Vís og Norðurþing undir samning um tryggingar sveitarfélagsins til næstu þriggja ára. 

Vís og Norðurþing hafa átt gott samstarf í hátt í fjóra áratugi og því er mikil ánægja með að samstarfið haldi áfram.
Samningur var gerður eftir útboð hjá Concello ehf. löggildri vátryggingamiðlun. 
Í samstarfinu hefur verið mikil áhersla á forvarnir og stefnir Norðurþing á að vera fremst meðal annarra sveitarfélaga í forvörnum.