Norðurþing óskar eftir þjónustufulltrúa í móttöku í stjórnsýsluhús sveitarfélagsins á Húsavík.
13.06.2017
Tilkynningar
Norðurþing óskar eftir þjónustufulltrúa í móttöku í stjórnsýsluhús sveitarfélagsins á Húsavík.
Um er að ræða 100% starf og er vinnutími alla virka daga á milli 8 og 16.
Helstu verkefni:
- Móttaka gesta í stjórnsýsluhúsi
- Símavarsla
- Afgreiðsla erinda
- Skjalavinnsla og skjalavarsla
- Ýmis tölvu og skrifstofuvinna
Menntunar og hæfniskröfur:
- Stúdentspróf eða önnur sambærileg menntun.
- Reynsla af skrifstofustörfum.
- Mjög góð íslensku- og enskukunnátta í ræðu og riti.
- Góð almenn tölvukunnátta.
- Mikil þjónustulund og lipurð í samskiptum.
- Sveigjanleiki og jákvæðni
- Nákvæmni í vinnubrögðum.
- Styrkur til að vinna undir álagi
Umsóknarfrestur er til 23. júní.
Nánari upplýsingar um starfið veitir Margrét Hólm Valsdóttir í síma 4646100, netfang margret@nordurthing.is. Umsóknir sendist á netfangið margret@nordurthing.is