Norðurþing óskar eftir tilboðum í framkvæmdir í Suðurfjöru
Sveitarfélagið Norðurþing óskar eftir tilboðum í framkvæmdir við gerð grjótvarnargarðs, lagningu jarðvegsdúks og fyllingu innan garðs í Suðurfjöru á Húsavík.
Helstu magntölur í verkinu eru:
• Endurröðun í núverandi garði um 200 m³
• Grjótröðun af flokki I, 1-3 tonn um 2.000 m³
• Grjótröðun af flokki II, 0,3-1 tonn um 1.000 m³
• Grjótröðun af flokki III, sprendur kjarni um 1.200 m³
• Útlagning og þjöppun fyllingar um 4.000 m³
Verkinu skal vera að fullu lokið eigi síðar en 20. september 2021.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt frá og með föstudeginum 4.júní 2021. Beiðni um afhendingu gagna skal send á netfangið rab@verkis.is
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu VERKÍS að Garðarsbraut 26, 640 Húsavík þann 18. júní 2021 klukkan 10.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Kynningarfundur fyrir væntanlega bjóðendur verður haldinn á skrifstofu VERKÍS á Húsavík þann 9. júní 2021 kl. 10.00.