Fara í efni

Norðurþing sigraði Akureyri

Eins og flestum mun kunnugt vera, sigraði lið Norðurþings lið Akureyrar með mögnuðum endaspretti í úrslitaþætti Útsvars síðast liðið föstudagskvöld.

Eins og flestum mun kunnugt vera, sigraði lið Norðurþings lið Akureyrar með mögnuðum endaspretti í úrslitaþætti Útsvars síðast liðið föstudagskvöld.

Það var reyndar á brattann að sækja hjá þeim Stefáni, Togga og Kristveigu allt fram á lokamínúturnar því lið Akureyrar var yfir allan tímann og sigurinn virtist þeirra. En eins og stundum áður hafa stóru spurningarnar í lokin reynst Norðurþingi drjúgar í stigasöfnuninni og í kvöld komust þau yfir í næstsíðustu spurningunni. Og það dugði til sigurs því lið Akureyrar klikkaði á sinni síðustu spurningu og Norðurþing sigraði með 75 stigum gegn 73 stigum Akureyrar. (http://www.640.is/)

Við óskum liðsmönnum Norðurþings, þeim Togga, Kristveigu og Stefáni og íbúum Norðurþings til hamingju með þennan glæsta sigur.