Fara í efni

Ný dagsetning Mærudaga 2025

Vegna beiðni um að breyta dagsetningu um Mærudagshátíðina var fjölmenningarfulltrúa falið að skoða hvort aðrar dagsetningar til að halda hátíðina kæmu til greina. Var m.a. leitað eftir afstöðu framkvæmdastjóra Mærudaga og stjórnar Íþróttafélagsins Völsungs, ásamt því að horfa til starfssemi Norðurþings.

Á fundi fjölskylduráðs þann 15. október var samþykkt að Mærudagshátíðin fari fram, til reynslu, helgina eftir verslunarmannahelgi.
Mærudagar 2025 fara því fram 8.-10. ágúst.
Eftir það verður ákvörðun varðandi framtíðartímasetningu hátíðarinnar endurskoðuð.

Sjá fundargerð frá 198. fundi fjölskylduráðs Norðurþings