Fara í efni

Ný heimasíða Norðurþings

Eins og gestir heimasíðu Norðurþings hafa eflaust orðið varir við þá er ný heimasíða komin í loftið. Skipulag nýju síðunnar er töluvert breytt frá því sem áður var og einnig hentar hún betur en sú gamla til skoðunar í snjallsímum og spjaldtölvum. Gera má ráð fyrir einhverjum hnökrum á síðunni fyrsta kastið og biðjum við hlutaðeigandi að sýna okkur þolinmæði á meðan greitt er úr þeim. Af tæknilegum orsökum hefur ekki verið hægt að nálgast allar fundargerðir á nýju síðunni en það stendur til bóta á allra næstu dögum.

Ef þú ert með tillögu um efni á síðuna eða vilt koma á framfæri ábendingum um það sem betur má fara, endilega sendu tölvupóst á Snæbjörn Sigurðarson, snabbi@nordurthing.is, eða Margréti Hólm Valsdóttur, margret@nordurthing.is, umsjónarfólk síðunnar.