Fara í efni

Nýr félagsráðgjafi hjá Félagsþjónustu Norðurþings

Signý Valdimarsdóttir félagsráðgjafi hefur verið ráðinn í stöðu félagsráðgjafa hjá Félagsþjónustu Norðurþings sem auglýst var í byrjun maí.

Signý lauk prófi í félagsráðgjöf frá HÍ 2007 og kennsluréttindanámi frá HA 2010.  Signý hefur aðallega starfað sem kennari hjá Þekkingarneti Þingeyinga undanfarin ár.  Signý mun hefja störf í ágúst.