Fara í efni

Nýr forstöðumaður Setursins

Alma Lilja Ævarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður geðræktarmiðstöðvarinnar Setursins.  Alma hefur stundað háskólanám í sálfræði og stundar nú nám í Nútímafræði við Háskólann á Akureyri. 

Alma Lilja Ævarsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður geðræktarmiðstöðvarinnar Setursins. 

Alma hefur stundað háskólanám í sálfræði og stundar nú nám í Nútímafræði við Háskólann á Akureyri. 

Hún hefur víðtæka reynslu á sviðinu og hefur m.a. starfað í Setrinu, á þjálfunarheimilinu í Sólbrekku, auk þess sem hún hefur starfað sem liðveitandi og stuðningsfjölskylda. 

Alma tekur við starfinu 1. ágúst næstkomandi.