Fara í efni

Nýr rekstrarstjóri hafna í Norðurþingi

Þórir Örn Gunnarsson hefur verið ráðinn rekstrarstjóri hafna hjá Norðurþingi

Þórir Örn Gunnarsson er með B.Sc. próf í véliðnfræði frá Háskólanum í Reykjavík. Síðastliðin ár hefur hann starfað sem aðstoðarframkvæmdastjóri hjá vélsmiðjunni Grím ehf ásamt því að reka fyrirtæki í atvinnuköfun. Þórir þekkir vel til reksturs og stjórnunnar ásamt því að hafa mikla reynslu af hafnsækinni starfsemi úr starfi sínu hjá Grím, sem sjómaður og úr eigin rekstri. Norðurþing býður Þórir Örn velkominn til starfa.