Nýr sálfræðingur hjá Norðurþingi
16.09.2011
Tilkynningar
Anný Peta Sigmundsdóttir hefur verið ráðin sálfræðingur hjá Norðurþingi í 70 % stöðu. Anný Peta er
fædd og uppalin á Húsavík.
Anný Peta Sigmundsdóttir hefur verið ráðin sálfræðingur hjá Norðurþingi í 70 % stöðu. Anný Peta er fædd og uppalin á Húsavík.
Hún lauk B.A. prófi í sálfræði frá Háskólanum á Akureyri og meistaranámi í sálfræði frá Háskólanum í Árósum í Danmörku. Norðurþing býður Anný Petu velkomna til starfa.