Fara í efni

Nýr skólastjóri leikskólans Grænuvalla

Sigríður Valdís Sæbjörnsdóttir  hefur verið ráðin skólastjóri Grænuvalla. Sigríður Valdís er leikskólakennari og hefur menntun og reynslu varðandi stjórnun.

Hún  var áralangt deildastjóri á leikskóla og er nú forstöðumaður Miðjunnar – hæfingastöðvar fyrir fatlaða. Þrjár umsóknir bárust og vann Capacent  úr umsóknum og hafði umsjón með úrvinnslu málsins.

Norðurþing býður Sigríði Valdísi velkomna til nýrra starfa.