Nýr starfsmaður í stjórnsýsluhúsi
20.07.2006
Tilkynningar
Ágústa Sigurðardóttir sem hefur séð um ræstingar í
stjórnsýsluhúsi undanfarin ár er að láta af störfum um þessar mundir. Starfið hefur verið auglýst og bárust fjórar
umsóknir um stöðuna. Þóranna Jónsdóttir hefur verið ráðin, en hún hefur starfað við Borgarhólsskóla um nokkurra
ára skeið. Um leið og við bjóðum Þórönnu velkomna til starfa þökkum við Ágústu vel unnin störf og óskum henni
velfarnaðar í nýju starfi.
Ágústa Sigurðardóttir sem hefur séð um ræstingar í stjórnsýsluhúsi undanfarin ár er að láta af störfum um þessar mundir. Starfið hefur verið auglýst og bárust fjórar umsóknir um stöðuna. Þóranna Jónsdóttir hefur verið ráðin, en hún hefur starfað við Borgarhólsskóla um nokkurra ára skeið. Um leið og við bjóðum Þórönnu velkomna til starfa þökkum við Ágústu vel unnin störf og óskum henni velfarnaðar í nýju starfi.