Fara í efni

Nýtt kaffihús og gallerý á Raufarhöfn

Á Raufarhöfn er nú verið að koma upp myndarlegu kaffihúsi og gallerýi. Það er félagið Gallerý Ljósfang sem hefur staðið fyrir framkvæmdum sl. mánuði við að breyta húsnæði N1 sem er í hjarta þorpsins.

Á Raufarhöfn er nú verið að koma upp myndarlegu kaffihúsi og gallerýi. Það er félagið Gallerý Ljósfang sem hefur staðið fyrir framkvæmdum sl. mánuði við að breyta húsnæði N1 sem er í hjarta þorpsins.

Laugardaginn 6. júní verður opið í Kaffi Ljósfangi frá kl. 14:00 (eða að messu lokinni) til kl. 19:00. Ýmis opnunartilboð verða í gangi þennan dag. Þeir sem eiga handverk og vilja láta selja fyrir sig eru hvattir til að koma með vöru sína á föstudaginn og er vonast til að fólk taki vel í þessa nýjung.

Hið nýja kaffihús mun taka 20 manns í sæti og verður opið alla daga vikunnar frá kl. 11:00 -21:30.