Fara í efni

Opinn fundur SA um stöðu atvinnumála og vinnumarkaðinn á Húsavík 11. nóvember

Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar um stöðu atvinnumála og vinnumarkaðinn fimmtudaginn 11. nóvember á Húsavík. Fundurinn fer fram á Veitingahúsinu Sölku kl. 12-14 og verður boðið upp á léttan hádegisverð. Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, munu ræða um stöðuna í atvinnulífinu, komandi kjarasamninga og svara fyrirspurnum. Stjórnendur og forsvarsmenn fyrirtækja, stórra sem smárra, eru hvattir til að mæta og taka þátt ásamt öllu áhugafólki um uppbyggingu atvinnulífsins. Fundurinn eru öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA hér að neðan: Skrá þátttöku hér

Samtök atvinnulífsins efna til opins fundar um stöðu atvinnumála og vinnumarkaðinn fimmtudaginn 11. nóvember á Húsavík.

Fundurinn fer fram á Veitingahúsinu Sölku kl. 12-14 og verður boðið upp á léttan hádegisverð. Vilmundur Jósefsson, formaður SA og Vilhjálmur Egilsson, framkvæmdastjóri SA, munu ræða um stöðuna í atvinnulífinu, komandi kjarasamninga og svara fyrirspurnum. Stjórnendur og forsvarsmenn fyrirtækja, stórra sem smárra, eru hvattir til að mæta og taka þátt ásamt öllu áhugafólki um uppbyggingu atvinnulífsins. Fundurinn eru öllum opinn en nauðsynlegt er að skrá þátttöku á vef SA hér að neðan: Skrá þátttöku hér