Fara í efni

Opinn fundur vegna sóknaráætlunar Eyþings

Atvinnuþróunarfélag Þingeyinga boðar til vinnufundar vegna gerðar sóknaraætlunar Eyþings þriðjudaginn 15. janúar kl. 16:00 í Skúlagarði í Kelduhverfi. Áætlað er að fundinum ljúki eigi síðar en kl. 19:00.  

Fundurinn tekur til starfssvæðis Atvinnuþróunarfélags Þingeyinga og er viðfangsefni hans  greining vandamála og framsetning hugmynda til lausna á þremur málefnasviðum sem skilgreind hafa verið:

  • Atvinnumál og nýsköpun
  • Mennta- og menningarmál (hið formlega skólakerfi undanskilið)
  • Markaðsmál (ferðaþjónustu og eftir atvikum almennt)

Heitt á könnunni og léttur kvöldverður (súpa og brauð) í boði í fundarlok.