Fara í efni

Opinn sjóðfélagafundur lífeyrissjóða

Lífeyrissjóður starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar og lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga boða til sameiginlegs sjóðsfélagafundar á Grand Hótel Reykjavík við Sigtún þann 13. mars n.k. kl. 17:00. Lífeyrissjóður starfsmanna Húsavíkurkaupstaðar og lífeyrissjóður starfsmanna sveitarfélaga boða til sameiginlegs sjóðsfélagafundar á Grand Hótel Reykjavík við Sigtún þann 13. mars n.k. kl. 17:00.

Farið verður yfir rekstur og afkomu Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga og lífeyrissjóða í hans rekstri í ljósi nýútkominnar skýrslu Landssamtaka lífeyrissjóða um úttekt á fjárfestingastefnu, ákvarðanatöku og lagalegu umhverfi lífeyrissjóðanna í aðdraganda bankahrunsins 2008.

Sjóðfélagar eru hvattir til að mæta á fundinn.

Nánari upplýsingar og dagskrá verður birt síðar á heimasíðu Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga: http://www.lss.is/ og verður þar krækja  þar sem hægt verður að fylgjast beint með fundinum.

Þann 13. mars, kl. 17.00 verður hægt að fylgjast með fundinum beint á slóðinni:
http://www.samband.is/um-okkur/sjodfelagafundur-lss/

Aðrir sjóðir sem taka þátt í fundinum eru:

  • Lífeyrissjóður starfsmanna Reykjavíkurborgar
  • Lífeyrissjóður starfsmanna Kópavogsbæjar
  • Lífeyrissjóður Akraneskaupstaðar
  • Lífeyrissjóður Neskaupstaðar

Stjórn Lífeyrissjóðs starfsmanna sveitarfélaga