Fara í efni

Örnefni um landið

Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Menningarráð Eyþings og Urðarbrunnur (Hið þingeyska fornleifafélag, Þingeyskur sagnagarður og Fornleifaskóli barnanna)gangast fyrir fundi um örnefni og örnefnasöfnun á Norðurlandi eystra miðvikudaginn 23. september, kl. 20.30 í Litlulaugaskóla í Reykjadal, Þingeyjarsýslu.

Á fundinum mun Svavar Sigmundsson stofustjóri Örnefnasafns stofnunarinnar m.a. fjalla um mikilvægi örnefnasöfnunar, til hvers örnefnum hefur verið safnað, hver hefur haft örnefnasöfnun á hendi til þessa og hvernig staðið hefur verið að söfnun. Þá fer hann yfir stöðu þessara mála á Norðurlandi eystra. Svavar ræðir síðan um hvernig hægt er að koma örnefnum á framfæri við almenning og reynir að svara því hvernig eigi að varðveita örnefni sem best til framtíðar í heimi mikilla breytinga á atvinnuháttum og hugsunarhætti í þjóðfélaginu og hver eigi að kosta þá varðveislu.

Fyrirspurnir og umræður að loknu erindi.

Ókeypis er á fundinn.

Allir velkomnir.

Menningarráð Eyþings
Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum
Urðarbrunnur