Fara í efni

Ráðið hefur verið í starf deildarstjóra frístundar og félagsmiðstöðvar á Húsavík

Ráðningu í starf deildarstjóra frístundar og félagsmiðstöðvar á Húsavík er nú lokið og hefur Andri Birgisson verið ráðinn í starfið.

Andri útskrifaðist með BS gráðu í ferðamálafræði og sagnfræði frá Háskóla Íslands. Hann hefur víðtæka starfsreynslu og starfaði m.a. sem umsjónarmaður hjá frístundaheimilinu Frostaskjól í 6 ár. Einnig hefur hann starfað hjá Húsavíkurstofu og komið að skipulagningu Mærudaga.

Andri mun flytja aftur á æskuslóðir og hefja störf um miðjan ágúst.
Norðurþing býður Andra velkominn til starfa.