Fara í efni

Ráðið hefur verið í starf rekstrarstjóra hafna

Bergur Elías Ágústsson hefur verið ráðinn í starf rekstrarstjóra hafna Norðurþings.

Bergur Elías er með masterspróf í sjávarútvegsfræðum frá Háskólanum í Tromsö í Noregi og hefur auk þess tekið mörg námskeið og áfanga tengda doktorsnámi í heimspeki og stærðfræði/tölvunarfræði. Hann hefur víðtæka starfsreynslu úr sjávarútvegi og opinberri stjórnsýslu og var m.a. bæjarstjóri Vestmannaeyjabæjar 2003-2006 og Bæjar- og hafnastjóri Norðurþings 2006-2014. Hann hefur unnið sem framkvæmdastjóri og ráðgjafi frá árinu 2016.

Bergur Elías er kvæntur Bryndísi Sigurðardóttur. Þau búa á Húsavík og eiga sjö börn og fósturbörn sem eru flutt úr foreldrahúsum.

Bergur mun hefja störf hjá sveitarfélaginu í byrjun október. Við bjóðum hann velkominn til starfa.