Fara í efni

Ráðning í starf verkefnastjóra búsetu

Ráðningu í starf verkefnastjóra búsetu við Félagsþjónustu Norðurþings er nú lokið og hefur Anna María Þórðardóttir verið ráðin í starfið.

Anna María er fædd og uppalin á Húsavík.   Hún útskrifaðist sem þroskaþjálfi frá Háskóla Íslands árið 2009, hún hefur starfað í fötlunarmálum í 19 ár bæði á Íslandi og í Bretlandi.  Hún  hefur víðtæka reynslu af búsetumálum fatlaðra og hefur starfað sem forstöðumaður á sambýlinu Pálsgarði frá árinu 2011.  Anna María tekur við starfinu af Dögg Stefánsdóttur sem horfið hefur til annarra starfa.

Um leið og Norðurþing þakkar Dögg fyrir vel unnin störf í þágu sveitarfélagsins býður það Önnu Maríu velkomna til starfa á nýjum vettvangi innan Félagsþjónustu Norðurþings.