Regnbogabraut áfram lokuð fyrir akandi umferð.
29.07.2024
Tilkynningar
Regnbogabraut á Húsavík hefur heldur betur fengið góðar undirtektir og margir óskað eftir lengri lokun enda bæði heimamenn og ferðafólk sem nýtir götuna sem göngugötu og til myndatöku.
Því hefur verið ákveðið að nýta áfram samþykkt skipulags- og framkvæmdaráðs frá 192. fundi ráðsins 2. júlí sl.og hafa Garðarsbrautina lokaða á þessum parti á meðan ferðamannastraumurinn er hvað mestur eða til 12. ágúst.