Ásgarðsvegur - Stórigarður Reiturinn - 2. áfangi Gatnagerð og lagnir
30.04.2024
Tilkynningar
Sveitarfélagið Norðurþing og Orkuveita Húsavíkur óska eftir tilboðum í framkvæmdir við Ásgarðsveg og Stóragarð, Reiturinn 2. áfangi en um er að ræða gatnagerð og lagnir við Ásgarðsveg og Stóragarð á Húsavík.
Helstu magntölur í verkinu eru:
- Uppúrtekt úr götu og stígum um 3100 m³
- Uppúrtekt fyrir skurði um 1000 m³
- Gröftur fyrir lögnum um 2100 m³
- Fylling í götur um 4000 m³
- Stofnlagnir fráveitu um 670 m
- Uppsetning ljósastaura um 10 stk.
Útboðsgögn verða afhent rafrænt í tölvupósti frá og með þriðjudeginum 30.apríl 2024. Beiðni um gögn skal senda á netfangið sjh@verkis.is eða aft@verkis.is
Tilboðin verða opnuð á skrifstofu VERKÍS að Garðarsbraut 26, 640 Húsavík þann 30. maí 2024 klukkan 14.00 að viðstöddum þeim bjóðendum sem þess óska.
Kynningarfundur fyrir væntanlega bjóðendur verður haldinn á skrifstofu VERKÍS á Húsavík þann 08. maí 2024 kl. 14.00.