Samstarfsyfirlýsing um kísilver á Bakka - tvær undirritanir vegna uppbyggingar iðjuvers í landi Bakka við Húsavík
15.02.2013
Tilkynningar
Í dag skrifaði Steingrímur J. Sigfússon atvinnuvega- og nýsköpunarráðherra undir yfirlýsingu um samstarf ríkisins við
Norðurþing, Hafnarsjóð Norðurþings og þýska iðnfyrirtækið PCC vegna áforma um uppbyggingu kísilvers á Bakka.
Þá var jafnframt undirritað samkomulag milli Norðurþings, Hafnarsjóðs Norðurþings og íslenska ríkisins um ýmsar
nauðsynlegar aðgerðir svo hægt verði að ráðast í atvinnuuppbyggingu á Bakka.
Á næstunni mun atvinnuvegaráðherra leggja fram tvö frumvörp á Alþingi. Annað frumvarpið gerir ráð fyrir að
ráðherra verði veitt heimild til að gera fjárfestingarsamning um byggingu kísilvers á Bakka. Hitt frumvarpið er lagt fram til að afla heimilda
fyrir ríkið til að kosta uppbyggingu tiltekinna innviða sem eru nauðsynleg forsenda verkefnisins, einkum vegtengingu milli hafnarinnar og
iðnaðarsvæðisins á Bakka og stækkun Húsavíkurhafnar.
Með þessum undirritunum er stigið veigamikið skref í uppbyggingu nýs iðnaðarsvæðis á Norðurlandi.