Sautján umsóknir um stöður framkvæmdastjóra
Alls bárust sautján umsóknir um þrjár stöður framkvæmdastjóra nýrra málefnasviða sem auglýstar voru á dögunum.
Alls bárust sautján umsóknir um þrjár stöður framkvæmdastjóra nýrra málefnasviða sem
auglýstar voru á dögunum.
Um stöðu framkvæmdastjóra Fjármála- og stjórnsýslusviðs sóttu Arinbjörn Kúld,
Guðmundur Björn Eyþórsson, Hulda Ragnheiður Árnadóttir, Ingibjörg Árnadóttir, Jón Helgi Björnsson, Pálmi
Jónsson og Þorgrímur J.Sigurðsson.
Um stöðu framkvæmdastjóra Fjölskyldu- og þjónustusviðs sóttu Erla Sigurðardóttir, Guðmundur
Björn Eyþórsson, Rósa Bjarnadóttir og Sveinn Birgir Hreinsson.
Um stöðu framkvæmdastjóra Umhverfis- og framkvæmdasviðs sóttu Böðvar Bjarnason, Gaukur Hjartarson,
Guðbjörg Stella Árnadóttir, Heimir Gunnarsson, Vigfús Sigurðsson og Örn Sigurðsson