Sigríður Valdimarsdóttir ráðin í starf félagsráðgjafa við Félagsþjónustu Norðurþings
07.02.2017
Tilkynningar
Sigríður Valdimarsdóttir hefur verið ráðin í starf félagsráðgjafa við Félagsþjónustu Norðurþings.
Sigríður hefur lokið mastersnámi í félagsráðgjöf frá Háskóla Íslands. Undanfarin ár hefur hún unnið sem félagsráðgjafi hjá Reykjavíkurborg, Þjónustumiðstöð Miðborgar og Hlíða.
Norðurþing býður Sigríði velkomna í starfsmannahópinn.