Fara í efni

Skíðagöngubraut á Reykjaheiði

5 kílómetra langur skíðagöngu hringur var troðinn uppá Reykjaheiði í dag, laugardaginn 9.janúar. Troðið verður reglulega fyrir göngufólk eins og snjóalög og aðstæður leyfa. Upplýsingar um spor dagsins verður að finna hér inná heimasíðu Norðurþings.

Ný vefsíða sveitarfélagsins er í vinnslu og mun endanlegt fyrirkomulag fylgja nýju síðunni. Einnig er bent á Facebook síðu skíðagöngudeildar Völsungs  https://www.facebook.com/Sk%C3%AD%C3%B0ag%C3%B6ngudeild-V%C3%B6lsungs-902249526524427/ 

Skíðagöngudeildin hefur komið upp salernisaðstöðu og kaffiskúrum uppá heiði og verður spennandi að fylgjast með uppbyggingunni á svæðinu í framtíðinni.