Fara í efni

Skíðagöngunámskeið á Húsavík

Námskeið í skíðagöngu verður haldið laugardaginn 14. febrúar kl. 10:00 - 13:00.  Námskeiðið fer fram á golfvellinum á Húsavík. Farið verður yfir helstu atriði hefðbundinnar skíðagöngu og ætti námskeiðið að henta jafnt byrjendum sem lengra komnum, börnum og fullorðnum.

Námskeið í skíðagöngu verður haldið laugardaginn 14. febrúar kl. 10:00 - 13:00.  Námskeiðið fer fram á golfvellinum á Húsavík.

Farið verður yfir helstu atriði hefðbundinnar skíðagöngu og ætti námskeiðið að henta jafnt byrjendum sem lengra komnum, börnum og fullorðnum.

Hægt verður að fá skíðabúnað lánaðan á staðnum fyrir þá sem ekki eiga.

Skráning er á staðnum og er þátttaka ókeypis.

Leiðbeinandi á námskeiðinu er Þorsteinn Hymer.

Skíðagöngudeild ÍFV