Skíðanámskeið fyrir fatlaða í Hlíðarfjalli 2012
Þrjú skíðanámskeið fyrir fatlaða verða haldin í Hlíðarfjalli í vetur. Námskeiðin hefjast á föstudögum kl. 17.00 og lýkur á sunnudögum kl. 16.00.
Námskeiðin eru öll fyrir byrjendur og lengra komna og alla fötlunarhópa.
Hámarksfjöldi á hvert námskeið tekur mið af þörf á sérbúnaði og aðstoðarfólki. Fyrstu skráningar ganga fyrir svo fólk er hvatt til að skrá tímanlega.
Nánari upplýsingar um dagskrá verður send skráðum þátttakendum.
Tímasetning námskeiða 2012
-
2. – 4. mars 2012
-
16. – 18. mars 2012
-
13. – 15. apríl 2012
Námskeiðsgjöld eru kr. 12.000.- Innifalið: lyftugjöld, búnaður, léttur hádegisverður kennsla og ráðgjöf.
Skráningar og nánari upplýsingar:
Hlíðarfjall elsa@saltvik.is GSM 864-2062
Íþróttasamband fatlaðra annak@isisport.is GSM 897-5523