Fara í efni

Skipulagslýsing fyrir hluta iðnaðarsvæðis á Bakka

Á fundi sínum þann 20. nóvember s.l. samþykkti bæjarstjórn Norðurþings tillögu skipulags- og byggingarnefndar frá 14. nóvember  að skipulagslýsingu deiliskipulags fyrir hluta iðnaðarsvæðis á Bakka.

Skipulags- og matslýsingin er nú til kynningar á heimasíðu Norðurþings.  Þeim sem kynnu að hafa ábendingar eða athugasemdir við lýsinguna er bent á að koma þeim á framfæri við Norðurþing fyrir 10. desember 2012.  Tekið verður á móti skriflegum ábendingum á bæjarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9, Húsavík eða í tölvupósti (gaukur@nordurthing.is).

Gaukur Hjartarson
Skipulags- og byggingarfulltrúi