Skólaakstur fyrir Norðurþing
31.03.2025
Störf í boði
Fjársýsla ríkisins, fyrir hönd Norðurþings kt. 640169-5599, óskar eftir tilboðum í skólaakstur með grunnskólanemendur.
Útboðið miðast við akstur nemenda til og frá Öxarfjarðarskóla og Borgarhólsskóla. Samtals þrjár leiðir, tvær leiðir eru fyrir Öxarfjarðarskóla, ein leið er fyrir Borgarhólsskóla og miðast því við a.m.k. þrjár bifreiðar.
Hverjum bjóðanda er heimilt að bjóða í eina eða fleiri leiðir.
Leið 1: Kópasker – Öxarfjarðarskóli
Leið 2: Fjöll 2 – Öxarfjarðarskóli
Leið 3: Hveravellir – Borgarhólsskóli