Skólamáltíðir í Borgarhólsskóla
Á fundi Fræðslunefndar þann 2. desember s.l. var lögð fram skýrsla starfshóps sem farið hefur yfir það fyrirkomulag sem
verið hefur á skólamáltíðum í Borgarhólsskóla undanfarin ár. Fræðslunefnd fjallaði um skýrsluna og
samþykkti bókun um áframhald málsins.
Borgarhólsskóli
Á fundi Fræðslunefndar þann 2. desember s.l. var lögð fram skýrsla starfshóps sem farið hefur yfir það fyrirkomulag sem verið hefur
á skólamáltíðum í Borgarhólsskóla undanfarin ár.
Fræðslunefnd fjallaði um skýrsluna og samþykkti bókun um áframhald málsins.
"Fræðslunefnd vísar skýrslu starfshóps nefndar um skólamáltíðir til bæjarráðs og leggur áherslu á að endurskoða og einfalda fyrirkomulag vegna skólamáltíða með það að markmiði að sem flestir nýti sér skólamáltíðir. Vilji fræðslunefndar er að nýtt fyrirkomulag taki gildi frá upphafi næsta skólaárs. "