Fara í efni

Skólaþjónustan með erindi fyrir foreldra barna í Svalbarðsskóla

Þann 19. nóvember síðastliðinn héldu Anný Peta sálfræðingur og Árný Þóra námsráðgjafi erindi fyrir foreldra barna í Svalbarðsskóla. Erindið bar heitið „lengi býr að fyrstu gerð- samstarf heimilis og skóla“.

 Mæting var mjög góð þrátt fyrir leiðindarveður. Skemmtilegar umræður sköpuðust og ljóst er að foreldrar hafa áhuga á fræðslu sem stuðlar að bættri líðan og árangri barna þeirra. Stefnt er að annarri fræðslu á vorönn og býðst þá foreldrum að velja umfjöllunarefni eftir þörfum og/eða áhuga.