Fara í efni

Skólatónleikar á Íslandi -Tónlist fyrir alla heimsækja Austur og Norðausturland

Vikuna 16. – 20. september munu tónleikar Tónlistar fyrir alla hljóma um Austur og Norðausturland. Dúó Stemma og Páll og Laufey munu ferðast á milli grunnskóla og leika fyrir nemendur.

Tónlist fyrir alla leitast við að bjóða  upp á vandaða skólatónleika fyrir börn þar sem skemmtun og menntun haldast í hendur. Við bjóðum upp á fjölbreytta tónlist í hæsta gæðaflokki í flutningi atvinnutónlistarfólks. Upplifun barnanna af tónleikunum er lykilatriði og áhersla er lögð á að hún verði sem allra best.


Samtals verða haldnir 25 tónleikar í þessari viku. Fyrstu tónleikarnir hefjast á Egilsstöðum og í Fellabæ. Dúó Stemma með þeim Herdísi Önnu Jónsdóttur víóluleikara og Steef van Oosterhout slagverksleikara mun aka norðurfyrir og enda ferð sína á Akureyri en Laufey Sigurðardóttir fiðluleikari og Páll Eyjólfsson gítarleikari keyra firðina einn af öðrum og enda á Hofgörðum í Öræfasveit í vikulok.

Hér er því ströng og skemmtileg tónleikadagskrá framundan og vonandi að hver einsti nemandi fái notið.