Skrifað undir vatnssölusamning
08.10.2015
Tilkynningar
Fimmtudaginn 8.október skrifuðu Fannar Þorvaldsson framkvæmdastjóri Fiskeldisins í Haukamýri og Gunnlaugur Aðalbjarnarson framkvæmdastjóri Orkuveitu Húsavíkur undir nýjan vatnssölu og nýtingarsamning á heitu og köldu vatni fyrir fiskeldisstarfsemi félagsins í Haukamýri við Húsavík.
Fannar fagnaði undirskriftinni og sagði áform um frekari uppbygginu og fjölgun starfa hjá fiskeldinu.
Gunnlaugur tók undir orð Fannars og sagði Orkuveituna mjög ánægða með að endurnýja viðskiptasamning við traustan og öflugan viðskiptavin sem hyggur á frekari vöxt.