Fara í efni

Slökkt ljós á Húsavík í kvöld

Ákveðið hefur verið að fara að fordæmi Reykvíkinga og slökkva á götuljósum á Húsavík í kvöld til kl 23.00.
Ástæðan er sú að spáð er glæsilegri norðurljósasýningu í kvöld.
Vonir standa til að það verði heiðskýrt þannig að sýning náttúrunnar skili sér sem allra best.
Vegfarendur eru beðnir um að sýna varkárni á meðan götuljósin eru slökkt.