Sorpmóttaka í Víðimóum er lokuð í dag vegna veðurs
06.01.2022
Tilkynningar
Lokað er í sorpmóttökunni í Víðimóum í dag vegna veðurs.
Mikill vindur kemur í veg fyrir að hægt sé að opna hurðir að austan- og sunnanverðu.
Sorpmóttakan opnar aftur á morgun, 7. janúar, klukkan 13:00.
Við biðjum íbúa að fara varlega og þökkum sýndan skilning.