Sóttvarnir í stjórnsýsluhúsinu á Húsavík
02.10.2020
Tilkynningar
Vegna fjölgunar smita í samfélaginu hefur stjórnsýsluhúsið á Húsavík sett sér ákveðnar reglur sem gilda um starfsemina.
Það sem snertir helst íbúa/utanaðkomandi er eftirfarandi:
Umgangur um húsið er takmarkaður og viljum við biðja þá sem eiga erindi við okkur að hringja fyrst í síma 464 6100 og/eða senda tölvupóst á viðkomandi starfsmann (sjá netfangalista starfsfólks) og reyna að afgreiða erindi með þeim hætti áður en kemur til þess að mæta til okkar í afgreiðsluna. Einnig er hægt að senda tölvupóst á netfangið nordurthing@nordurthing.is
Þeir sem koma inn í húsið (inn fyrir afgreiðslu) þurfa að bera grímu. Bendum við á leiðbeiningar um örugga notkun skurðstofugríma.
Þetta er gert til að lágmarka smithættu skjólstæðinga og starfsfólks og höfðum við til samfélagslegrar ábyrgðar hvers og eins.
Allar helstu upplýsingar um covid-19 má finna á Covid.is