Fara í efni

Starf í Túni

Frístundaheimilið Tún á Húsavík auglýsir eftir frístundaleiðbeinanda til að sinna frístundastarfi barna á aldrinum 6 – 9 ára í vetur. Viðkomandi starfsmaður er hugsaður sem stuðningur við börn með sérþarfir.      

Vinnutími er frá kl. 12:30-16:00  mánudag - fimmtudag. Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf í byrjun janúar.

Viðkomandi þarf að hafa gaman af því að vinna með börnum og vera með hreint sakavottorð.

Frekari upplýsingar veitir Kjartan Páll Þórarinsson, tómstunda- og æskulýðsfulltrúi Norðurþings í síma 464-6100, kjartan@nordurthing.is